Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Nýsköpunarvika

15 maí, 11:30 - 12:30

Tækniþróunarsjóður og Enterprise Europe Network  bjóða til hádegisviðburðar undir yfirskriftinni „The Innovative Globetrotter“ sem myndi útleggjast á íslensku sem „Skapandi heimshornaflakkarinn“.

Viðburðurinn fer fram á ensku og hefst klukkan 11:30.

Á þessum viðburði munu gestir meðal annars heyra frá aðilum úr nýsköpunargeiranum sem hafa tekið skrefið út fyrir landsteinanna með stuðningi í gegnum Rannís.  Fjallað verður um Eurostars, Innowwide, Digital Europe og Enterprise Europe Network.

Viðburðurinn er skipulagður í samstarfi við Nýsköpunarviku Íslands  og er haldinn í Pop-up rými (Regnboga) Nýsköpunarvikunnar á Hafnartorgi

Boðið verður upp á léttan hádegisverð og í lokin brjótum við upp dagskrárformið og kitlum hláturtaugarnar með sérstökum gesti.

Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á nýsköpun í íslensku samfélagi og vilja fræðast um tækifæri á erlendri grundu.

Dagskrá

  • 11:30 Velkomin – Mjöll Waldorff, sérfræðingur hjá Rannís
  • 11:40 Geosilica – Fida Abu Libdeh framkvæmdastýra og stofnandi
  • 11:50 Digital Europe – Sigþrúður Guðnadóttir, sérfræðingur hjá Rannís
  • 12:00 Defent Iceland – Theódór Ragnar Gíslason, framkvæmdastjóri og stofnandi
  • 12:10 Uppistand – Snjólaug Lúðvíksdóttir
  • 12:30 Viðburði lýkur

Þá verður sýningarbás frá Rannís á sýningarsvæði Nýsköpunarvikunnar í Kolaportinu, þar sem tækifæri á sviði nýsköpunar verða í forgrunni.

Details

Date:
15 maí
Time:
11:30 - 12:30
Event Category:
Event Tags:
,
Website:
https://www.innovationweek.is/

Organizers

Enterprise Europe Network
Rannsóknamiðstöð Íslands

Venue

Hafnartorg
Geirsgata 17
Reykjavík, Regnboginn, Pop-up rými Iceland
+ Google Map