Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Evrópusamvinna í 30 ár

8 maí, 14:00 - 18:00

Árið 2024 eru 30 ár síðan að samningur Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var undirritaður og veitti Íslandi meðal annars aðgang að innri markaði Evrópusambandsins og aukin tækifæri til samstarfs í Evrópu. Í tilefni af þeim tímamótum bjóða Rannís, utanríkisráðuneytið, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og sendinefnd ESB á Íslandi til tveggja viðburða miðvikudaginn 8. maí. annars vegar málþingið: EES í 30 ár – ávinningur, tækifæri, áskoranir og hins vegar Uppskeruhátíð Evrópuverkefna: Evrópusamvinna í 30 ár.

Á hátíðinni verður fagnað árangri undanfarinna ára þar sem gestir geta kynnt sér fjölmörg verkefni sem hafa fengið styrki úr áætlunum ESB. Verkefnin koma alls staðar að úr samfélaginu, enda hafa samstarfsáætlanir ESB styrkt íslenska aðila á sviði menntamála, kvikmyndagerðar, æskulýðsmála, rannsókna, nýsköpunar, almannavarna og fleiri sviðum.

Details

Date:
8 maí
Time:
14:00 - 18:00
Event Category:
Website:
https://www.rannis.is/vidburdir/evropusamvinna/evropusamvinna

Organizer

Rannsóknamiðstöð Íslands
View Organizer Website

Venue

Kolaportið
Reykjavík, Iceland + Google Map