Fyrirtækjastefnumót
Fyrirtækjastefnumót eru viðburðir sem Enterprise Europe Network stendur fyrir á ráðstefnum í Evrópu
Á stórum ráðstefnum og vörusýningum er tíminn oft takmarkaður og getur því verið erfitt að eiga fundi með áhugaverðum viðskiptaaðilum. Enterprise Europe Network sér um að safna fyrirtækjum, einstaklingum og stofnunum alls staðar að úr heiminum saman á einn stað til að eiga snarpa viðskiptafundi.
Netverkið starfar í yfir 40 löndum og er því auðvelt að safna skráningum áhugaverðra fyrirtækja.
Vettvangurinn er einfaldur og er auðvelt að bóka fundi með áhugaverðum aðilum.
Um er að ræða 15 – 20 mínútna örfundi við mögulega samstarfsaðila. Eina sem þarf að gera er að skrá sig á fyrirtækjastefnumótið og fylla inn viðeigandi upplýsingar.
Með því að nýta sér fyrirtækjastefnumót sparast tími og viðkomandi á góða möguleika á því að stofna til framtíðar viðskiptasambands.
Leiðbeiningar við skráningu á fyrirtækjastefnumót
1. Skrá sig inn (Profil), vöru (Product) og/eða verkefni/áskorun (Request)
- Skráðu upplýsingarnar um þig og þitt fyrirtæki/sveitarfélag/stofnun eins vel og þú getur.
- Settu allt fram á einfaldan og hnitmiðaðan hátt.
- Þinn prófíll ætti að lýsa hver þú ert (þitt fyrirtæki/sveitarfélag/stofnun), hvað þú hefur uppá að bjóða/leitar eftir og hverja þú vilt hitta.
- Góður prófíll skiptir sköpum hér.
- Þegar þú hefur stofnað aðgang færðu upp síðuna þína. ATH að neðst á miðri síðunni þinni þarftu að skrá undir Marketplace Opportunities – þú skráir í:
- Product ef þú ert með vöru, þekkingu eða þjónustu í boði eða til þróunar.
- Request ef þú leitar að lausn hvort sem er ákveðinni vöru/þjónustu/ráðgjöf eða ef þú ert með áskorun sem þú athugaa hvort einhver annar hafi hugsanlega lausn á, eða getur þróað í samvinnu við þig.
- Góð skráning í Marketplace er grunnur fyrir því að fá fundarbeiðnir og að aðrir samþykki fundarboð frá ykkur.
2. Skoða þátttakendur (Participants) og verkefni (Marketplace)
- Skoðaðu áhugaverð tækifæri, fyrirtæki/sveitarfélög/stofnanir og vörur/lausnir/þjónustu.
3. Senda og svara fundarbeiðnum
- Skoðaðu reglulega þátttakendur (og nýja) og verkefni þeirra, og sendu þeim fundarbeiðni sem þú vilt funda með. Gott er að skrá hvers vegna þú vilt hitta viðkomandi en það eykur líkur á að fundurinn verði samþykktur
- Samþykktar fundarbeiðnir koma sjálfkrafa inn á tímaáætlun þína.
- Gott ráð: Sækið „b2match“ snjallforritið fyrir farsíma til að halda utan um fundina þína í símanum!
- Yfirlit yfir fundina þína og fundarbeiðnir finnurðu undir „Meetings“ (efst á gráu stikunni)
- Fundarbeiðnum verður að svara, að öðru leyti verður ekkert af fundum.
- Reglur varðandi bókanir
- Allir skráðir aðilar geta óskað eftir fundum með öllum öðrum skráðum aðilum.
- Samþykkja þarf fundi til að þeir komi inn í dagskrá þína yfir fundi.
4. Fyrirtækjastefnumótið og áminning
- Daginn fyrir fyrirtækjastefnumótið færðu tölvupóst með yfirliti yfir fundina þína.
- Þú sækir síðan dagskrána þína í „b2match“ snjallforritinu sem heldur utan um fundina þína í símanum!
Gangi þér vel





