Stafræn vegferð

Við aðstoðum lítil og meðalstór fyrirtæki gegnum stærsta viðskiptatengslanet heims

Við hjá Enterprise Europe Network getum aðstoðað lítil og meðalstór fyrirtæki að innleiða stafrænar lausnir. Við veitum sérsniðna ráðgjöf eftir ítarlegt mat á þörfum og áskorunum fyrirtækis þíns. 

  • Er stafræn nýsköpun hluti af markmiðasetningu þíns fyrirtækis? 
  • Er stafræn nýsköpun hluti af grunn viðskiptamódeli og er verið að skoða stafræna nýsköpunarferla? 

 

Tækniframfarir kalla á stafræna umbreytingu. Fyrirtæki vilja sjá hagnað, traust viðskiptavina, starfsánægju, þau vilja taka betri ákvarðanir, besta ferla og auka skilvirkni. Öll þessi atriði bæta samkeppnisstöðu þeirra. Kröfur til fyrirtækja aukast. Viðskiptavinir vilja að á þá sé hlustað og að kröfum þeirra sé mætt. Samkeppnin verður sífellt harðari, starfsmenn kalla eftir nýstárlegri stjórnun og gerð er krafa á aukna gagnanýtingu og sýnileika. Allt eru þetta hvatar til stafrænnar þróunar.  

Hvað er stafvæðing?

Stafvæðing er notkun stafrænnar tækni til að breyta grunn viðskiptamódeli til að opna á nýjar tekjulindir og verðmætaskapandi tækifæri. Markmiðið er að skapa ný verðmæti, með því að nota stafræna tækni! Viðskiptamódel fyrirtækja er að breytast í takt við tímann.

Grunn stafvæðing sem hluti af viðskiptamódeli fyrirtækja

  • Samfélagsmiðlar
  • Farsímatækni
  • Skýjalausnir
  • Gagnagreiningar og gagnanýting
  • Internet hlutanna (gervigreind, róbótartækni, sjálfvirknivæðingu ofl.)
  • Þrvíddarprentun (ódýrar prótótýpur)
  • Gervigreind (spjall vélmenni)
  • Netöryggi (öryggispróf)
  • og önnur stafræn tól sem hjálpa við stafvæðingu fyrirtækja

Dæmi um stafvæðingu fyrirtækis

Fyrirtæki getur hafið stafræna gagnasöfnun um viðskiptavini (CRM kerfi), endurgjöf þeirra, viðbrögð og þarfir með því að nota samfélagsmiðla og gagnagreiningu. Verðmæti sem skapast eru t.d. nýjar vörur sem tók skemri tíma að hanna þar sem viðskiptavinir eru með í ráðum, til verður betri þjónusta við viðskiptavini sem síðan skapar auknar tekjur, ánægju, skilning á þörfum viðskipavinarins og betri samskipti.

Enterprise Europe Network býður litlum og meðalstórum fyrirtækjum að fara í gegnum greiningu á stöðu þeirra í stafrænni nýsköpun og þróun og fá umræður í gang um ofangreindar spurningar.

Þess ber einnig að geta að við vinnum náið með miðstöð stafrænnar nýsköpunar á Íslandi, e. European Digital Innovation Hubs – EDIH, sem sérhæfir sig í að aðstoða fyrirtæki við að nýta starfræn tækifæri.