Tækniþróunarsjóður og Enterprise Europe Network bjóða til hádegisviðburðar undir yfirskriftinni „The Innovative Globetrotter“ sem myndi útleggjast á íslensku sem „Skapandi heimshornaflakkarinn“.
Viðburðurinn fer fram á ensku og hefst klukkan 11:30.
Á þessum viðburði munu gestir meðal annars heyra frá aðilum úr nýsköpunargeiranum sem hafa tekið skrefið út fyrir landsteinanna með stuðningi í gegnum Rannís. Fjallað verður um Eurostars, Innowwide, Digital Europe og Enterprise Europe Network.
Viðburðurinn er skipulagður í samstarfi við Nýsköpunarviku Íslands og er haldinn í Pop-up rými (Regnboga) Nýsköpunarvikunnar á Hafnartorgi
Boðið verður upp á léttan hádegisverð og í lokin brjótum við upp dagskrárformið og kitlum hláturtaugarnar með sérstökum gesti.
Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á nýsköpun í íslensku samfélagi og vilja fræðast um tækifæri á erlendri grundu.
Þá verður sýningarbás frá Rannís á sýningarsvæði Nýsköpunarvikunnar í Kolaportinu, þar sem tækifæri á sviði nýsköpunar verða í forgrunni.