Enterprise Europe Network heldur fyrirtækjastefnumót í tengslum við jarðvarmaráðstefnuna, Iceland Geothermal Conference 2024, IGC, í Hörpu 30. maí 2024. Orkuklasinn hefur veg og vanda af ráðstefnuhaldinu, en hún er að jafnaði haldin á 2-3 ára fresti. Þetta er í fimmta sinn sem hún er haldin hér á landi og er ráðstefnan þegar orðin einn helsti umræðuvettvangur jarðvarma og endurnýjanlegrar orku í heiminum í dag. Dagskrána má nálgast hér.
Fyrirtækjastefnumót er kjörinn vettvangur til að:
-
- eiga árangursríka fundi með mögulegum viðskiptaaðilum
-
- koma þekkingu, vörum og þjónustu á framfæri
-
- eiga samtal við aðila til að þróa áfram verkefni
-
- stofna til viðskiptasambanda til langframa
-
- styrkja tengslanetið
Hver fundur er einungis 20 mínútur svo fundirnir verði skilvirkir og árangursríkir.
Viðburðurinn er ætlaður þátttakendum og sýnendum IGC 2024 jarðvarmaráðstefnunnar.
Fyrirtækjastefnumótið er gjaldfrjálst og er sérstök skráning á viðburðinn í gegnum vefsíðu IGC ráðstefnunnar. SKRÁNING
Skráning á viðburðinn er auðveld og fundarsíðan er einföld í notkun. Einnig er hægt að nálgast app (b2match) sem heldur utan um viðskiptasamböndin og fundarbókanir. Hægt er að horfa á myndband um fyrirtækjastefnumót hér á vefsíðu EEN.
Viðburðinn er haldinn í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu, fimmtudaginn 30. maí 2024
Við hvetjum alla þátttakendur á ráðstefnunni sem hafa áhuga á nýjum viðskiptatengslum eða vilja eiga óformlegt spjall við áhugaverð fyrirtæki að skrá sig á fyrirtækjastefnumótið og taka þátt í þessum viðburði.
——————————–Enterprise Europe Network aðstoðar fyrirtæki að vaxa á alþjóðavettvangi með sérsniðinni þjónustu og stuðningi. Fyrirtækjastefnumót er hluti af því.
Í samvinnu við samstarfsaðila í netverkinu í Evrópu og ráðstefnuhaldara, skipuleggjum við fyrirtækjastefnumót á fjölbreyttum ráðstefnum bæði hér á landi og erlendis. Við tryggjum að gagnkvæmur ávinningur og eftirfylgni sé í fyrirrúmi. Traust viðskiptatengsl eru lykillinn ásamt breiðu netverki.