Sérsniðin aðstoð
Við veitum sérsniðna ráðgjöf sem auðveldar fyrirtækjum sókn á nýja markaði og þátttöku í alþjóðlegu samstarfi.
Hvaða atvinnugrein sem er, við gerum okkar besta til að ráðleggja varðandi markaðstækifæri og styrkjamöguleika sem hjálpa þínu fyrirtæki í aukinni alþjóðasókn. Við bjóðum hagnýta ráðgjöf og markvissar markaðsupplýsingar og veitum stuðning út ferilinn.
– Yfirlit evrópskra styrkjamöguleika
– Hugverkavernd
– Hagnýtar upplýsingar til að stunda viðskipti í Evrópu
– Allt sem þú þarft að vita varðandi inn- og útfluttning í Evrópu
Viðskiptatækifæri
Við aðstoðum fyrirtæki að komast í erlent samstarf gegnum tengslanet okkar og þá viðburði sem við bjóðum upp á, sem hjálpar fyrirtækjum til vaxtar á alþjóðlegum mörkuðum.
Í gagnagrunni Enterprise Europe Network sem er sá stærsti sinnar tegunda má finna þúsundir tækifæra sem geta aukið samkeppnishæfni þíns fyrirtækis.
– Leit að viðskiptatækifærum í gagnabanka
Við skipuleggjum markviss og skilvirk fyrirtækjastefnumót á alþjóðlegum ráðstefnum sem auka líkur á viðskiptasamningum og spara fyrirtækjum tíma og peninga. Einnig skipuleggjum við fyrirtækjaheimsóknir út um allan heim sem eru sérhannaðar fyrir viðskiptavini okkar og hafa leitt til samstarfssamninga, þökk sé góðum undirbúningi, staðbundinni þekkingu og leiðsögn sérfræðinga.
– Yfirlit væntanlegra viðburða hjá Enterprise Europe Network
Nýsköpun
Sérfræðingar okkar hafa þekkingu og reynslu til að veita fyrirtækjum sérsniðna aðstoð við nýsköpun og til vaxtar.
Við styðjum fyrirtæki að móta nýsköpunarferla og koma nýsköpun sinni hraðar á markað. Við aðstoðum við að greina arðbær viðskiptatækifæri og með sérfræðiráðgjöf okkar geta fyrirtæki aukið alþjóðasókn sína á öruggan hátt.