SustainableSolutionsMatch 2025 er þverfaglegur, stafrænn viðburður um umskipti Evrópu yfir í sjálfbærara og hringlaga hagkerfi. Ef þú ert að leita að hagnýtum eða nýstárlegum lausnum til að gera fyrirtækið þitt sjálfbærara eða undibúa það fyrir framtíðina, þá gæti þetta verið viðburður fyrir þig.
Boðið er upp á fyrirlestra, kynningar og fyrirtækjastefnumót.
Viðburðurinn fer fram á netinu 7. – 21. febrúar 2025
Dagskrá:
Opnun 7. feb: Erindi frá helstu sérfræðingum sem eru að móta græna hagkerfið í Evrópu.
Kynningar 10.-14. feb: Örkynningar þar sem hægt er að fylgjast með nýjustu (tækni)lausnunum.
Fyrirtækjastefnumót 10.-21. feb: Fyrirtækjastefnumót með tilheyrandi tækifærum til að tengjast.
Allir áhugasamir geta tekið þátt, hvort sem verið er að leita eða bjóða lausnir.
Skráning er nauðsynleg.
Nánari upplýsingar: dagskrá og skráning
Ef þú hefur spurningar þá er velkomið að hafa samband við Brynja Jónsdóttur.