Nýsköpunarvikan – Innovation Week 2025

Innovate and Elevate! – Funding, Founders and Fun er viðburður sem Rannís, Tækniþróunarsjóður og Enterprise Europe Network standa fyrir í Nýsköpunarvikunni. Nýsköpunarvikan fer fram dagana 12. til 16. maí. 

Viðburðurinn Innovate and Elevate! – Funding, Founders and Fun verður: Miðvikudaginn 14. maí kl. 12:15 til 13:15 í Pop-up rými Nýsköpunarvikunnar á Hafnartorgi 

Á dagskrá verða frásagnir frá frumkvöðlum, gagnlegar upplýsingar frá sérfræðingum varðandi styrkjarprógrömm og tækifæri til tengslamyndunar. Hvort sem þú ert frumkvöðull, fjárfestir eða hefur einfaldlega áhuga á nýsköpun, þá býður viðburðurinn upp á hagnýta þekkingu og nýja sýn. 

 Á viðburðinum koma fram: 

  • Svandís Unnur Sigurðardóttir, teymissjóri nýsköpunarteymis hjá Rannís 
  • Kristján Einarsson, CMO at Treble Technologies 
  • Sunna Ólafsdóttir Wallevik, CEO of Gerosion 
  • Sigþrúður Guðnadóttir, sérfræðingur hjá Rannís og Enterprise Europe Network 

Boðið verður upp á léttan hádegiverð á meðan viðburðinum stendur. 

Viðburðurinn mun fara fram á ensku.

Öll velkomin á viðburðinn en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir áætlun veitinga.