Nýsköpunarvikan 2026

Á Nýsköpunarviku 2026 verða Rannís, EEN og Tækniþróunarsjóður með viðbuður 28. apríl.

Rannís, Tækniþróunarsjóður og Enterprise Europe Network, í samstarfi við sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, bjóða til hliðarviðburðar í Nýsköpunarvikunni undir yfirskriftinni:

Harder, Better, Funded, Stronger – Funding, Founders and Future Tech

Þetta er viðburður þar sem hugmyndir verða að tækifærum, tengsl myndast og nýjar leiðir opnast fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Með blöndu af innblásnum kynningum, reynslusögum úr nýsköpunarumhverfinu og lifandi tónlistartækni, skapast kraftmikið og skapandi andrúmsloft þar sem framtíðin fær að hljóma.

Viðburðurinn er kjörið tækifæri til að:

  • Kynna sér stuðning og tækifæri fyrir nýsköpun

  • heyra reynslusögur

  • mynda tengsl

Dagskrá*

  • Harder: Opnunarávarp, Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi

  • Better: Tækifæri, stuðningur og sókn á nýja markaði, Mjöll Waldorff, sérfræðingur hjá Rannís og Enterprise Europe Network

  • Funded: Reynslusaga K01, Benedikt Kolbeinsson, meðstofnandi K01

  • Stronger: Reynslusaga Víkonnekt, Safa Jemai, framkvæmdastjóri Víkonnekt

  • Tónlist og tækni: Lifandi innslag

Boðið er upp á léttar veitingar í lok viðburðar.

*Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar

Viðburðurinn fer fram á ensku og er opinn öllum, en nauðsynlegt er að skrá sig


Skráning