Nýjar sjálfbærnireglur ESB: Hvað þurfa íslensk fyrirtæki að vita?

Nýjar sjálfbærnireglur ESB munu einnig hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki.

Evrópusambandið stefnir að kolefnishlutleysi árið 2050 og mun innleiða reglur í því sambandi sem munu hafa áhrif á fyrirtæki í allri virðiskeðjunni. Þótt margir tengi sjálfbærnireglur fyrst og fremst við stór fyrirtæki munu áhrifin ná langt út fyrir þann hóp. Á næstu árum munu íslensk fyrirtæki sem flytja út vörur til Evrópu, starfa í alþjóðlegum virðiskeðjum eða vinna með erlendum viðskiptavinum finna fyrir auknum kröfum um rekjanleika, gagnsæi og upplýsingar um vörur og umhverfisáhrif þeirra.

Það er vert að benda fyrirtækjum á að kynna sér og skoða nýjar sjálfbærnireglur ESB. Hér er ætlunin að skoða aðeins: vistvæna vöruhönnun (ESPR), stafrænt vöruvegabréf (DPP) og nýjar reglur um umbúðir og framleiðendaábyrgð (PPWR).

Vistvæn vöruhönnun (Ecodesign for Sustainable Products Regulation – ESPR)

Auknar kröfur verða gerðar um að vörur séu endingargóðar, auðvelt sé að gera við þær og að þær innihaldi færri skaðleg efni. Áhersla er á endurvinnslu og notkun endurunninna hráefna.

Þetta þýðir að fyrirtæki þurfa að skoða vörur sínar út frá öllu ferlinu, frá hráefnum til endurvinnslu. Fyrirtæki sem geta sýnt fram á minni umhverfisáhrif og betri nýtingu auðlinda munu eiga auðveldara með að uppfylla kröfur viðskiptavina og taka þátt í opinberum útboðum.

Stafrænt vöruvegabréf (Digital Product Passport – DPP)

Markmiðið er að auka gagnsæi um vörur á Evrópumarkaði og gera neytendum, fyrirtækjum og eftirlitsaðilum kleift að nálgast upplýsingar varðandi samsetningu efnis, kolefnisspor og heildarhringrásarhyggju. Stafræna vegabréfið með upplýsingunum verður á formi QR kóða.

Kröfurnar munu fyrst ná til ákveðinna vöruflokka. Vöruflokkar sem um ræðir eru: rafhlöður, járn og stál, ál, textíll, húsgögn, dekk, þvottaefni, máling, ýmiss rafeindabúnaður og iðnaðarvöur. Fyrirtæki sem framleiða eða flytja slíkar vörur inn á Evrópumarkað þurfa að byggja upp kerfi til að safna og varðveita upplýsingar um vörurnar allan líftíma þeirra.

Kröfurnar munu taka gildi í áföngum fram til ársins 2030. Þau fyrirtæki sem hefja undirbúning snemma verða í sterkari stöðu þegar reglurnar verða að fullu komnar til framkvæmda.

Umbúðir og umbúðaúrgangur (PPW)

Ný reglugerð ESB kveður á um að umbúðir verði að hanna með það að markmiði að hægt sé að endurvinna út frá endurvinnaleikaflokkun. Einnig verða gerðar auknar kröfur um notkun endurunnins plasts, minni efnisnotkun og samræmdar merkingar til að auðvelda flokkun.

Þetta getur t.d.haft áhrif á matvælaframleiðendur, sjávarútvegsfyrirtæki, drykkjarvöruframleiðendur og þær netverslanir sem flytja vörur á Evrópumarkað.

Tækifæri fyrir framsýn fyrirtæki

Þótt reglurnar geti virst flóknar fela þær einnig í sér tækifæri. Fyrirtæki sem eru með góðar upplýsinar um vörur sínar og geta sýnt fram á sjálfbæra starfshætti verða betur í stakk búin til að sækja á nýja markaði, styrkja stöðu sína í virðiskeðjum og mæta kröfum fjárfesta og viðskiptavina.

Við hjá Enterprise Europe Network mælum með að undibúa sig tímanlega. Gott gæti verið að kortleggja vörugögn, ræða við birgja um rekjanleika og meta hvaða reglur gætu haft áhrif á starfsemina á næstu árum.

Nánari upplýsingar má finna á þessum vefsíðum:

Strategy – Environment – European Commission

Ecodesign for Sustainable Products Regulation – European Commission