Laki Power er nýsköpunarfyrirtæki sem var stofnað árið 2015 til að þróa uppfinningu Óskars H. Valtýssonar. Laki Power þróar og framleiðir eftirlitstæki til þess að fylgjast með ástandi háspennulína.
Sem nýsköpunarfyrirtæki nýtti Laki Power sér þjónustu sem Enterprise Europe Network veitir, en hér að neðan má sjá myndband sem var gert í samstarfi með Laki Power.
Samstarf Enterprise Europe Network við Laki Power
Enterprise Europe Network hitti fyrst Laki Power árið 2015 á viðburði haldinn var af Icelandic Startups hagsmunaaðila netverksins. þar ræddi fyrirtækið stöðu og vaxtarmöguleika og hvar netverkið gæti komið inn með aðstoð. Í framhaldi átti Enterprise Europe Network og Laki fund um alþjóðleg fjármögnunartækifæri og samstarfsleit.
Eftir fundinn fór Laki að leggja mat á valkosti í evrópska fjármögnunarkerfinu og sótti síðar um H2020. Í því ferli fékk Laki ítarlega ráðgjafarþjónustu varðandi almenna fjármögnun, aðgang að fjármagni, leiðsögn við umsóknina í SME instrument fasa II og síðar pitch þjálfun fyrir kynningu á umsókn sinni í Brussel.
Laki hefur nokkrum sinnum hlotið styrk frá tækniþróunarsjóði Rannís. Árið 2017 og 2020 var LakiPower eitt fárra verkefna sem hlaut hæsta styrkinn sem tækniþróunarsjóður veitti í sumarútkalli sínu. Mikil samkeppni ríkir um sjóðinn og er meðal árangur 8% af heildarfjölda umsókna fyrir alla styrkhluta og einungis 2,5% árangur fyrir hæsta styrk af heildarfjölda umsókna.
Í byrjun árs 2021 hlaut LakiPower 2,1 milljóna evra H2020 SME Instrument fasa II styrk frá Evrópusambandinu til að þróa tæknina áfram og efla sölu- og markaðsstarf á erlendum mörkuðum. Eftir að Laki hlaut styrkinn aðstoðaði netverkið þá með góðum árangri að finna þjálfara fyrir fyrirtækið sitt.
Fyrirtækið hefur haft margvísleg samskipti við Enterprise Europe Network. Ennfremur hafa samskiptin verið í báðar áttir og það fyrirkomulag auðveldað bæði fyrirtæki og netverki að koma auga á mögulegan stuðning. Laki er gott dæmi um hvernig árangursríkur stuðningur Enterprise Europe Network virkar í raunveruleikanum.