Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Þetta byrjar allt á góðri hugmynd!

26 september, 13:30 - 16:30

Málþing um ávinning íslenskra þátttakenda í evrópskum rannsókna- og nýsköpunaráætlunum.

Rannís boðar til opins málþings um þær evrópsku rammaáætlanir sem hýstar eru hjá Rannís (Horizon Europe, Life og Digital Europe, auk þjónustu EEN).

Málþingið er haldið á Grand hótel Reykjavík kl. 14:00 – 17:00.
Málþingið er hugsað sem stöðutaka á árangri Íslands fyrstu þrjú ár rammaáætlunarinnar og sem vettvangur fyrir þátttakendur og mögulega umsækjendur í rammaáætlanirnar að bera saman bækur og kynnast.

Dagskrá

  • 13:30 Hús opnar og skráning
  • 14:00 Ávarp
    – Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi
  • 14:05 Opnunarerindi
    – Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís
  • 14:20 Reynslusögur, myndbönd þar á milli
  • 14:25 Pallborðsumræður: „Vegferð styrkjaumsókna og ráð frá þátttakendum“
    – Þórhallur Magnússon, Háskóli Íslands
    – Hólmfríður Elvarsdóttir, Tern Systems
    – Þóra Óskarsdóttir, Fab Lab Reykjavík
    – Hörn Valdimarsdóttir, Defend Iceland
    Pallborðsstjóri: Sigurður Óli Sigurðsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís.​
  • 14:45 Reynslusögur – myndbönd þar á milli
  • 14:50 Pallborðsumræður: „Hvernig geta stofnanir og fyrirtæki stutt við árangursríkar umsóknir“
    – Oddur Már Gunnarsson, Matís
    – Gyða Einarsdóttir, Samband íslenskra sveitafélaga
    – Lilja Tryggvadóttir, Orkuveitan
    – Hulda Proppé, Háskóli Íslands
    Pallborðsstjóri: Sigrún Ólafsdóttir, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís

 

  • 15:10 Reynslusögur – myndbönd þar á milli
  • 15:15 Léttar veitingar og spjall
  • 16:30 Málþingi lýkur

Fundarstjóri: Kolfinna Tómasdóttir, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís

Málþingið er opið, og eru öll sem starfa við rannsókna- og nýsköpunarumhverfið á Íslandi hvött til að sitja málþingið. Fyrrum styrkþegar í áætlununum eru sérstaklega velkomnir.

Nauðsynlegt er að skrá sig í gegnum vef Rannís.

Fyrri hluta málþingsins verður streymt, en við hvetjum sem flest að mæta í hús til að efla sitt tengslanet.

Details

Date:
26 september
Time:
13:30 - 16:30
Event Category:
Website:
https://www.rannis.is/frettir/thetta-byrjar-allt-a-godri-hugmynd

Organizer

Rannsóknamiðstöð Íslands
View Organizer Website

Venue

Grand Hotel
Sigtún28
Reykjavík, Iceland
+ Google Map
View Venue Website