Samskiptaráð til fyrirtækja sem vilja á stærri markað

Samskiptaráð fyrir fyrirtæki sem vilja ná lengra og stefna á aðra markaði.

Í heimi þar sem allir keppast um athygli, þurfa nýsköpunarfyrirtæki og sprotar að hugsa stórt og tala skýrt. Það dugar ekki lengur að vera með frábæra vöru ef enginn veit af henni.

Í nýlegri bloggfærslu fjallar Carmen Gilabert González, samskiptafulltrá EEN á Spáni, um hversu mikilvæg samskipti eru í starfi fyrirtækja og geta verið hlekkurinn á milli nýsköpunar og árangurs. Hún nefnir að smáfyrirtæki og sprotar sem vilja vaxa þurfi að setja sér markvissa samskiptastefnu og hafa hana í forgangi.

Bloggfærsluna frá 28. maí 2025, má lesa hér: How to promote your company: 5 communication tips to reach international markets successfully | Enterprise Europe Network

Hér eru 5 hagnýt ráð fyrir skapandi fyrirtæki sem vilja efla markaðssetningu sína og láta til sín taka, bæði heima og erlendis:

1. Tímasetning skiptir máli
Tækifæri eru eins og vindurinn, þau koma og fara. Það getur gert gæfumuninn að vera fljót(ur) að miðla, og ná þannig athygli á réttu augnabliki. Tækifæið kemur kannski ekki aftur. Það er gott að vera með efnið tilbúið til að geta deilt því þegar það skiptir mestu máli.

2. Skýr og einföld skilaboð komast lengra
Að segja eða miðla efni á einfaldann og skýran máta er lykillinn, gott að geta talað svokallað mannamál. Eins er gott að huga að hvaða tungumál skal nota, ensku, íslensku, hvaða miðla, hvernig framsetningin er og fyrir hvaða marhópa efnið er ætlað. Það sem virkar á LinkedIn virkar ekki endilega á Instagram. Hver miðill á sitt tungumál.

3. Sýndu hvernig lausnin nýtist fólki
Tækni þjónar manneskjunni en ekki öfugt. Einnig er gott að hafa í huga að fólk vill vita: hvernig bætir þetta líf mitt? Sterk tenging við raunveruleg vandamál og tilfinningar getur skapað trúverðugleika og áhuga.

4. Skapaðu tengsl, ekki bara fylgi
Að eiga 1000 fylgjendur á samfélagsmiðlum er ekki það sama og að hafa 1000 manns sem hlusta á mann. Samskipti snúast um þátttöku, samræður og gildi. Gott getur verið að tala um tilgang, samfélagsábyrgð og manneskjurnar á bak við vöruna.

5. Vertu skapandi 
Sköpunarkraftur í markaðssetningu er ekkert aukaatriði.
Í sjónrænum heimi þarf hugmyndaríkt efni til að staldra við. Það getur verið gott að staldra við og finna nýja leið til að segja söguna sína. 

Vel útfærð samskiptastefna getur skipt sköpum, hvort sem þú ert að kynna þér tækifæri í Evrópu, sækja um styrki eða vilt vaxa á nýjum markaði.