Nýsköpunarvikan 2024 fer fram dagana 14.-16. maí.
Enterprise Europe Network og Tækniþróunarsjóður bjóða til hádegisviðburðar undir yfirskriftinni „The Innovative Globetrotter“ sem myndi útleggjast á íslensku sem „Skapandi heimshornaflakkarinn“.
Viðburðurinn fer fram á ensku og hefst klukkan 11:30.
Á þessum viðburði munu gestir meðal annars heyra frá aðilum úr nýsköpunargeiranum sem hafa tekið skrefið út fyrir landsteinanna með stuðningi í gegnum Rannís. Fjallað verður um fjármögnun, hvar er hægt að finna réttu styrkina og hvaða þjónusta er í boði handa fyrirtækjum sem vilja ná lengra. Sérfræðingar frá Rannís verða á svæðinu og kynna m.a. Eurostars, Innowwide, Digital Europe og Enterprise Europe Network.
Viðburðurinn er skipulagður í samstarfi við Nýsköpunarviku Íslands og er haldinn í Pop-up rými (Regnboga) Nýsköpunarvikunnar á Hafnartorgi.
Boðið verður upp á léttan hádegisverð og í lokin brjótum við upp dagskrárformið og kitlum hláturtaugarnar með sérstökum gesti.
Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á nýsköpun í íslensku samfélagi og vilja fræðast um tækifæri á erlendri grundu.
Dagskrá
- 11:30 Velkomin – Mjöll Waldorff, sérfræðingur hjá Rannís
- 11:40 Geosilica – Fida Abu Libdeh framkvæmdastýra og stofnandi
- 11:50 Digital Europe – Sigþrúður Guðnadóttir, sérfræðingur hjá Rannís
- 12:00 Defent Iceland – Theódór Ragnar Gíslason, framkvæmdastjóri og stofnandi
- 12:10 Uppistand – Snjólaug Lúðvíksdóttir
- 12:30 Viðburði lýkur
Þá verður sýningarbás frá Rannís á sýningarsvæði Nýsköpunarvikunnar í Kolaportinu, þar sem tækifæri á sviði nýsköpunar verða í forgrunni.
Hlökkum til að hitta ykkur!