Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin og ráðstefnan (IceFish) er einn helsti alþjóðlegi vettvangur fagfólks í sjávarútvegi, fiskvinnslu og fiskeldi. Sýningin nær yfir alla virðiskeðjuna, frá veiðum og leit, til vinnslu, pökkunar og dreifingar og sameinar lykilaðila sem móta framtíð greinarinnar.
IceFish sýningin fer fram í Fífunni í Kópavogi, dagana 22.–24. september 2026.
Sem hluti af sýningunni mun Enterprise Europe Network standa fyrir sérstöku fyrirtækjastefnumóti (matchmaking) dagana 22.–23. september 2026.
Viðburðurinn byggir á svokölluðu „hraðstefnumóti“ fyrirtækja, þar sem þátttakendur eiga fyrirfram skipulagða einstaklingsfundi (1:1) með mögulegum samstarfsaðilum. Þetta gefur tækifæri til að:
- Finna nýja birgja og viðskiptavini
- Kanna nýja alþjóðlega markaði
- Tengjast lykilákvörðunaraðilum
- Mynda samstarf
Viðburðurinn hentar meðal annars:
- Framleiðendum og vinnsluaðilum í sjávarútvegi
- Útgerðarfyrirtækjum
- Fyrirtækjum í fiskeldi
- Tæknifyrirtækjum og búnaðarframleiðendum
- Fjárfestum og sérfræðingum
Þátttakendur koma alls staðar að úr heiminum og því er fyrirtækjastefnumótið opið öllum.
Þátttaka er ókeypis.
Skráning á fyrirtækjastefnumótið opnar í ágúst 2026.
Við hvetjum öll til að fylgjast með IceFish 2026 og huga að því að tryggja sér sæti á fyrirtækjastefnumótinu í tima.
Hægt er að senda tölvupóst til að forskrá sig á fyrirtækjastefnumótið á IceFish 2026.