Vantar samstarfsaðila í Evrópuverkefni?

Fyrirtækjastefnumót eru góð leið til að finna samstarfsaðila í Evrópuverkefni eða efla tengslanetið. Leita ráða hjá EEN.

Rétti samstarfsaðilinn getur verið nær en þig grunar.

Fyrirtækjastefnumót (brokerage events) eru markvissir viðburðir þar sem fyrirtæki, frumkvöðlar og rannsakendur víðsvegar að hittast á örfundum. Fundirnir eru oft skipulagðir sem stuttir, 15-20 mín fundir, þar sem þátttakendur hitta marga mögulega samstarfsaðila á stuttum tíma.

Af hverju að taka þátt í fyrirtækjastefnumóti?

Fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki geta tengslamót verið lykill að nýjum tækifærum:

  • Finna samstarfsaðila í alþjóðleg verkefni
  • Undirbúa umsóknir í styrktaráætlanir
  • Kynnast nýjum mörkuðum og lausnum
  • Tengjast aðilum sem vinna að svipuðum áskorunum

Eitt samtal getur verið upphafið að nýju verkefni.

Hvernig virka fyrirtækjastefnumót?

Áður en þú tekur þátt:

  • skráir þú þig á viðburð
  • fyllir út upplýsingar þar sem þú lýsir þínu fyrirtæki og því sem þú leitar að

Síðan:

  • bókar þú fundi með áhugaverðum aðilum
  • hittir þá á stuttum, skipulögðum fundum

Markmiðið er einfalt, að finna rétta samstarfið á sem skilvirkastan hátt.

Við hjá Enterprise Europe Network á Íslandi aðstoðum þig við að:

https://youtu.be/u73Dz33uBLY