Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð og þjónustu Enterprise Europe Network
miðvikudaginn 28. janúar kl. 9:00-10:30
í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, á 1. hæð.
Sérfræðingar frá Rannís munu kynna opinberan stuðning til nýsköpunarverkefna í Tækniþróunarsjóði auk tækifæra á erlendum mörkuðum.
Dagskrá
Fundarstjóri: Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins
- Styrkir Tækniþróunarsjóðs – Arnþór Ævarsson, Rannís
- Skattahvatar rannsókna- og þróunarverkefna – Sigurður Óli Sigurðsson, Rannís
- Styrkir Eurostars og þjónusta EEN – Mjöll Waldorf, Rannís
- Reynslusaga styrkþega – Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Hefring Marine og aðildarfyrirtæki Samtaka iðnaðarins
Boðið verður upp á morgunkaffi og að loknum erindum gefst góður tími fyrir spurningar, samtal og tengslamyndun.
Við hlökkum til að sjá ykkur.