Kynningarfundur á styrkja- og stuðningsumhverfinu
28 janúar, 09:00 - 10:30
Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð miðvikudaginn 28. janúar kl. 9:00-10:30 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, á 1. hæð.
Sérfræðingar frá Rannís munu kynna opinberan stuðning til nýsköpunarverkefna í Tækniþróunarsjóði auk tækifæra á erlendum mörkuðum.
- Styrkir Tækniþróunarsjóðs – Arnþór Ævarsson, Rannís
- Skattahvatar rannsókna- og þróunarverkefna– Sigurður Óli Sigurðsson, Rannís
- Styrkir Eurostars og þjónusta EEN – Mjöll Waldorf, Rannís
- Reynslusaga styrkþega – Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandiHefring Marine og aðildarfyrirtæki Samtaka iðnaðarins
Boðið verður upp á morgunkaffi og að loknum erindum gefst góður tími fyrir spurningar, samtal og tengslamyndun.
Við hlökkum til að sjá ykkur, en þátttakendur eru beðnir að skrá sig:
Fundurinn verður einnig í beinu streymi.