„Embracing global markets“ er röð vefnámskeiða sem Enterprise Europe Network stendur fyrir á árinu 2024. Tilgangur námskeiðanna er að styðja við evrópsk fyrirtæki til að vaxa á alþjóðavettvangi.
Á námskeiðunum er farið yfir mikilvægar markaðsupplýsingar, sem og upplýsingar um helstu reglugerðir sem fyrirtæki þurfa að fylgja til að stækka á mörkuðum í Asíu, Afríku og Ameríku.
Vefnámskeiðin eru hugsuð fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og sprotafyrirtæki til nýsköpunar og útrásar í Asíu, Afríku og Ameríku.
Næstu námskeið:
- 7 mars 2024, 10:00-11:00 (Busseltími): Að stunda viðskipti í Víetnam: Græn tækni í Víetnam
- 21 mars 2024, 16:00-17:00 (Busseltími): Að stunda viðskipti í Bandaríkjunum: Sprotaumhverfið í Bandaríkjunum.
- 4. apríl 2024, 8:00- 09:15: Að stunda viðskipti í Vítenam: matvælaframleiðsla í Víetnam
- 16-17. apríl 2024: Viðskiptatækifæri í Bandaríkjunum:
- maí 2024, 16:00-17:00 (Brusseltími): Að stunda viðskipti í Bandaríkjunum: farið er yfir það sem tengist sjálfbærum orkumarkað í Bandaríkjunum
- júní 2024, 16:00-17:00 (Brusseltími): Að stunda viðskipti í Bandaríkjunum: farið verður yfir lífríki lífvísinda í Bandaríkjunum
- júlí 2024, 16:00-17:00 (Brusseltími): Að stunda viðskipti í Bandaríkjunum: atvinnu- og mannauðsmarkaður í Bandaríkjunum
- september 2024, 16:00-17:00 (Brusseltími): Að stunda viðskipti í Bandaríkjunum: innflutningstollamál í Bandaríkjunum
- október 2024, 16:00-17:00 (Brusseltími): Að stunda viðskipti í Bandaríkjunum: innflytjendareglur Bandaríkjanna
Vinsamlegast athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara og geta breyst.
Nánari upplýsingar má finna hér. Öll námskeiðin verða auglýst á LinkedIn síðu EEN.