Hefur þú nýlega fengið styrk úr Horizon Europe eða öðru evrópsku samstarfsverkefni?
Þann 29. október næstkomandi verða sérfræðingar Enterprise Europe Network og Rannís með námskeið fyrir þátttakendur í evrópskum rannsókna- og nýsköpunarverkefnum.
Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga þegar verkefni hefst og hvernig best er að standa að stjórnun þess frá upphafi til að tryggja farsæla framkvæmd þess.
Umfjöllunarefni
- Samningur og helstu skyldur verkefnisaðila
- Samstarfssamningur
- Fjárhagsstjórnun og kostnaðarbókhald
- Starfsmannakostnaður og tímaskráningar
- Skýrslugjöf og eftirfylgni verkefna
- Vinnupakkar, verkefnastjórnun og ábyrgð
- Miðlun niðurstaðna og samskipti
- Stuðningur og ráðgjöf frá Rannís á verkefnistímanum
Námskeiðið er ætlað nýjum þátttakendum í evrópskum rannsókna- og nýsköpunarverkefnum.
Námskeiðið fer fram á íslensku og ensku ef þess er óskað.
Athugið að það er takmarkaður fjöldi sem getur sótt námskeiðið, hámarksfjöldi er 20 manns.
Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst til að tryggja sæti.