Loading Events

« All Events

Frá viðskiptahugmynd til fjármögnunar

24 October, 10:00 - 14:00

Master class námskeið í umsjá Uffe Bundgaard-Joergensen, framkvæmdastjóra Gate2Growth.

Markmið námskeiðsins er að leiðbeina frumkvöðlum í gegnum lykilþætti í gerð árangursríkrar viðskiptaáætlunar og öflunar fjármagns.
Fjallað verður um hvernig má sameina fjármögnun úr einkageiranum með opinberum styrkjum, með sérstakri áherslu á styrki frá ESB, eins og fjármögnunarleiðir EIC  og EU Innovation Fund. Þátttakendur munu læra hvernig hægt er að nýta þessa styrki til að brúa bilið í fjármögnun og auka trúverðugleika gagnvart fjárfestum.
Þátttakendur fá aðgang að sérsniðnu efni, þar á meðal glærum, viðskiptaáætunum og öðru efni frá Gate2Growth í þrjá mánuði.

Að auki verða persónulegir ráðgjafatímar með Uffe í boði í byrjun eða lok dags, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að fá einstaklingsbundna endurgjöf.

Námskeiðið hentar vel fyrir frumkvöðla sem vilja dýpka skilning sinn á fjármögnunarleiðum og öðlast hagnýt verkfæri til að koma viðskiptahugmyndum sínum í framkvæmd.

Miðstöð starfrænnar nýsköpunar á Íslandi – EDIH á Íslandi (European Digital Innovation Hub) í samstarfi við EEN á Íslandi (Enterprise Europe Network) standa að viðburðinum sem er þátttakendum að kostnaðarlausu og fer fram á ensku.

Vinsamlegast athugið að takmarkað pláss er í boði og því nausðynlegt að skrá sig í gegnum vef Rannís.

Details

Date:
24 October
Time:
10:00 - 14:00
Event Category:
Event Tags:
, ,
Website:
https://een.is/fra-vidskiptahugmynd-til-fjarmognunar/

Organisers

Enterprise Europe Network
Miðstöð stafrænnar nýsköpunar

Venue

Gróska
Bjarkargata 1
Reykjavík, Iceland
+ Google Map