Enterprise Europe Network á Íslandi í samstarfi við WGC 2020 + 1 stendur fyrir fyrirtækjastefnumóti á World Geothermal Conference 2021 fyrir þátttakendur til að hittast á skilvirkan hátt. Viðburðurinn beinist að sýnendum og gestum ráðstefnunnar en önnur fyrirtæki og samtök eru einnig velkomin.
Fyrirtækjastefnumótið verður bæði haldið rafrænt og á staðnum.
Skráning og þátttaka er gjaldfrjáls.
Mótið verður haldið 25. október 2021. Hver fundur er einungis 20 mínútur svo fundirnir verði skilvirkir og árangursríkir. Skráning er auðveld og fundarsíðan er einföld í notkun.
Af hverju taka þátt?
• Finna framtíðar samstarfsaðila fyrir vöru eða þjónustu
• Eiga samtal við aðila til að þróa áfram verkefni
• Ræða nýjar hugmyndir við framtíðar samstarfsaðila
• Stofna til viðskiptasambanda til langframa
• Styrkja netverkið
Við hvetjum alla þátttakendur á ráðstefnunni sem hafa áhuga á nýjum viðskiptatengslum eða vilja eiga óformlegt spjall við áhugaverð fyrirtæki að taka þátt í þessum viðburð.
Skráning fer fram hér
Enterprise Europe Network aðstoðar fyrirtæki að vaxa á alþjóðavettvangi með sérsniðinni þjónustu og stuðningi. Fyrirtækjastefnumót er hluti af því. Í samvinnu við samstarfsaðila í Enterprise Europe Network og ráðstefnuhaldara, skipuleggjum við fyrirtækjastefnumót á fjölbreyttum ráðstefnum bæði hér og erlendis. Við tryggjum að gagnkvæmur ávinningur og eftirfylgni sé í fyrirrúmi. Traust viðskiptatengsl eru lykillinn ásamt breiðu netverki.