Þjónusta

Enterprise Europe Network á Íslandi aðstoðar lítil og meðalstór fyrirtæki, auk háskóla og opinbera aðila, gegnum stærsta viðskiptatengslanet heims.

Við veitum sérsniðna ráðgjöf sem auðveldar fyrirtækjum sókn á nýja markaði og þátttöku í alþjóðlegu samstarfi.

Hjá Enterprise Europe Network starfa um 3000 sérfræðingar á yfir 450 stöðum í fleiri en 40 löndum og í öllum heimsálfum. Með þessa sérþekkingu á alþjóðlegum mörkuðum og tengslanet í allri Evrópu og víðar, getum við boðið fyrirtækjum fjölbreytta aðstoð, eins og að komast á nýja markaði.

Ráðgjöfin er sérsniðin að þínum þörfum.
Öll þjónusta okkar er gjaldfrjáls.

Hagnýtar upplýsingar fyrir alþjóðlegan vöxt

Upplýsingavefur framkvæmdastjórnar ESB um:

  • réttindi borgara þegar þeir ferðast, flytja, vinna eða stunda nám í Evrópu.

  • heilbrigðisþjónustu, tryggingar, skattamál og neytendarétt.

  • leiðbeiningar fyrir fyrirtæki um viðskipti yfir landamæri, þjónustuveitingu, vörustaðla, skatta og opinber útboð.

  • tengla á gagnlegar þjónustur eins og SOLVIT, Evrópusku neytendaaðstoðina og EURES atvinnuupplýsingar.

Hér finnur þú allar upplýsingar varðandi inn- og útfluttning í Evrópu. 

Upplýsingar um tolla, reglur, upprunareglur, vörukröfur og viðskiptahindranir fyrir inn- og útflutning.

Þjónusta á vegum Evrópusambandsins sem veitir upplýsingar og ráðgjöf um hugverkarétt (IP), til dæmis einkaleyfi, vörumerki, hönnun og höfundarétt. Hægt er að senda inn fyrirspurnir eða bóka fund.
Þjónustan er ætluð:

  • Litlum og meðalstórum fyrirtækjum (SME)
  • Rannsóknaraðilum og háskólum
  • Þátttakenum í EU/Horizon verkefnum

SOLVIT er ókeypis þjónusta veitt af stjórnvöldum allra ESB landa sem og Íslands, Noregs og Liechtenstein. SOLVIT aðstoðar einstaklinga og fyrirtæki þegar opinber yfirvöld innan EES brjóta á réttindum þeirra á innri markaðinum.

SOLVIT-miðstöðin á Íslandi er staðsett í utanríkisráðuneytinu.

TED (Tenders Electronic Daily) er vefgátt fyrir evrópskan markað. Hægt er að fylgjast með útboðum og taka þátt í opinberum innkaupum á jafnréttisgrundvelli.

Upplýsingasíða framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vegna verkefna sem fjármögnuð eru með rammaáætlunum ESB um rannsóknir og nýsköpun.