2,5 milljónir evra til þróunar sjálfbærrar ammóníakframleiðslu – mikilvægur áfangi fyrir íslenska nýsköpun og græna tækni

Á rannsóknastofu Atmonia, sérfræðingar þar fengu nýverið, ásamt fleirum, EIC Transition styrk Evrópska nýsköpunarráðsins (EIC).

Dr. Helga Dögg Flosadóttir, framkvæmdastjóri og meðstofnandi nýsköpunarfyrirtækisins Atmonia, leiddi 2,5 milljóna evra styrkjaumsókn í EIC Transition Evrópska nýsköpunarráðsins (EIC). Verkefnið snýr að áframhaldandi þróun á nýrri tækni til að framleiða ammóníak úr lofti og vatni með umhverfisvænum hætti. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt verkefni hlýtur styrk úr EIC Transition.

Atmonia var stofnað árið 2016 upp úr rannsóknum innan Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Fyrirtækið þróar einkaleyfisvarða rafefnafræðilega aðferð til framleiðslu ammóníaks sem getur dregið verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda samanborið við hefðbundna framleiðslu. Ammóníak er eitt mikilvægasta hráefni heims fyrir áburðarframleiðslu, en framleiðsla þess byggir í dag að mestu á orkufrekum ferlum sem nota jarðefnaeldsneyti.

Verkefnið sem hlaut styrkinn nefnist EASY (Electrocatalytic Ammonia SYnthesis) og miðar að því að hraða þróun tækninnar í átt að markaðssetningu og leggja grunn að nýrri kynslóð sjálfbærrar framleiðslu á ammóníaki. Samstarfsaðilar verkefnisins koma frá fjórum löndum. Auk Atmonia taka þátt Landbúnaðarháskóli Íslands, VITO í Belgíu, TEGA í Þýskalandi og EcoVibes í Grikklandi.

„Þessi styrkur er mikilvæg viðurkenning á þeirri rannsóknar- og þróunarvinnu sem hefur átt sér stað hjá Atmonia undanfarin ár. Hann gerir okkur kleift að flýta þróun tækninnar og færa okkur nær því markmiði að bjóða upp á sjálfbærari lausnir með styttri virðiskeðju fyrir áburðarframleiðslu og aðra notkun ammóníaks. En styttri virðiskeðja er lykillinn að áburðaröryggi.“ segir Helga Dögg Flosadóttir, framkvæmdastjóri Atmonia.

EIC Transition er ein af þremur meginstoðum Evrópska nýsköpunarráðsins ásamt EIC Pathfinder og EIC Accelerator. EIC Transition er ætluð verkefnum sem hafa þegar sýnt fram á vísindalegan eða tæknilegan grunn og þurfa stuðning til að þróast áfram í átt að hagnýtingu og markaðssetningu. Styrkveitingin til Atmonia markar því tímamót fyrir íslenska þátttöku í evrópskum nýsköpunaráætlunum.

„Þessi styrkveiting er mikilvæg staðfesting á því að íslensk fyrirtæki og rannsakendur geta náð árangri í hörðustu samkeppnissjóðum Evrópu. EIC Transition styrkir eru veittir að loknu ströngu alþjóðlegu matsferli þar sem aðeins þeir allra fremstu hljóta brautargengi. Þessi árangur er lýsandi dæmi um þau tækifæri sem standa íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum til boða í Horizon Europe-áætluninni,“ segir Mjöll Waldorff, sérfræðingur hjá Rannís og verkefnastjóri Enterprise Europe Network á Íslandi.

Helga Dögg Flosadóttir framkvæmdastjóri Atmonia ehf.