Samstarf og árangur Defend Iceland

Sigþrúður Guðnadóttir ráðgjafi EEN og Theodór R. Gíslason hjá Defend Iceland.

Íslenskt samfélag hefur ekki farið varhluta af netárásum. Því hafa einstaklingar og fyrirtæki þurft að gera viðeigandi öryggisráðstafanir hjá sér. Eitt þeirra fyrirtækja sem hefur  sérhæft sig í netöryggismálum er nýsköpunarfyrirtækið Defend Iceland. Teymið hjá Enterprise Europe Network (EEN) er stolt af að hafa veitt aðstoð þannig að fyrirtækið varð að veruleika. Hugmynd og útfærsla Defend Iceland að bættu netöryggi hlaut á sínum tíma 2,6 milljón evra styrk úr Digital Europe áætluninni og fékk umsókn þeirra hæstu mögulegu einkunn. EEN-teymið hjá Rannís mun áfram fylgja fyrirtækinu eftir og vonast líka eftir að árangurssaga þeirra (sjá myndband hér neðar) verði hvatning fyrir aðra. 

Defend Iceland var stofnað af Theodóri Ragnari Gíslasyni árið 2023. Defend Iceland notar svokallaða villuveiðigátt (e. bug bounty platform) þar sem heiðarlegir hakkarar og öryggissérfræðingar leiða saman krafta sína í því skyni að koma í veg fyrir alvarleg innbrot í net-, tölvu- og hugbúnaðarkerfi fyrirtækja og stofnana. Markmiðið er að umbreyta stafrænni öryggismenningu á Íslandi og búa til öruggara starfrænt samfélag. 

Samstarf Defend Iceland og Enterprise Europe Network hófst áður en fyrirtækið var stofnað. Ráðgjöfin fólst einkum í leiðsögn varðandi fjármögnun í gegnum styrkjaáætlanir Evrópusambandsins og síðar yfirlestur á styrkumsókninni. Til að aðstoða fyrirtækið við að sýna fram á alþjóðlega möguleika verkefnisins, hjálpuðu EEN ráðgjafarnir þeim að koma á skýrum tengslum milli þeirra eigin sýnar og við evrópska og innlenda stefnu varðandi netöryggi. 

————— 

Enterprise Europe Network á Íslandi (EEN) er hluti af þeirri þjónustu sem Rannsóknarmiðstöð Íslands (Rannís) veitir og er styrkt af Evrópusambandinu. EEN á Íslandi getur aðstoðað lítil og meðalstór fyrirtæki, auk háskóla og opinbera aðila, við að efla samkeppnishæfni sína á alþjóðamarkaði gegnum stærsta viðskiptatengslanet heims.  Hjá netverkinu starfa um 3000 sérfræðingar á yfir 450 stöðum í fleiri en 40 löndum og í öllum heimsálfum.