Kynningarfundur á styrkja og stuðningsumhverfinu

Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð og þjónustu Enterprise Europe Network 
miðvikudaginn 28. janúar kl. 9:00-10:30

í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, á 1. hæð.

Sérfræðingar frá Rannís munu kynna opinberan stuðning til nýsköpunarverkefna í Tækniþróunarsjóði auk tækifæra á erlendum mörkuðum.

Dagskrá

Fundarstjóri: Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins

  • Styrkir Tækniþróunarsjóðs – Arnþór Ævarsson, Rannís
  • Skattahvatar rannsókna- og þróunarverkefna – Sigurður Óli Sigurðsson, Rannís 
  • Styrkir Eurostars og þjónusta EEN –  Mjöll Waldorf, Rannís
  • Reynslusaga styrkþega  – Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Hefring Marine og aðildarfyrirtæki Samtaka iðnaðarins

Boðið verður upp á morgunkaffi og að loknum erindum gefst góður tími fyrir spurningar, samtal og tengslamyndun. 

Við hlökkum til að sjá ykkur.