Evrópusamvinna í 30 ár

Kolaportið Reykjavík, Iceland

Árið 2024 eru 30 ár síðan að samningur Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var undirritaður og veitti Íslandi meðal annars aðgang að innri markaði Evrópusambandsins og aukin tækifæri til samstarfs í Evrópu. Í tilefni af þeim tímamótum bjóða Rannís, utanríkisráðuneytið, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og sendinefnd ESB á Íslandi til tveggja viðburða miðvikudaginn 8. maí. annars vegar […]

Nýsköpunarvika

Hafnartorg Geirsgata 17, Reykjavík, Regnboginn, Pop-up rými, Iceland

Tækniþróunarsjóður og Enterprise Europe Network  bjóða til hádegisviðburðar undir yfirskriftinni "The Innovative Globetrotter" sem myndi útleggjast á íslensku sem "Skapandi heimshornaflakkarinn". Viðburðurinn fer fram á ensku og hefst klukkan 11:30. Á þessum viðburði munu gestir meðal annars heyra frá aðilum úr nýsköpunargeiranum sem hafa tekið skrefið út fyrir landsteinanna með stuðningi í gegnum Rannís.  Fjallað verður um […]

Fyrirtækjastefnumót á Iceland Geothermal Conference 2024

Harpa Reykjavík, Iceland

Enterprise Europe Network heldur fyrirtækjastefnumót í tengslum við jarðvarmaráðstefnuna, Iceland Geothermal Conference í Hörpu 30. maí 2024. Orkuklasinn hefur veg og vanda af ráðstefnuhaldinu, en hún er að jafnaði haldin á 2-3 ára fresti. Þetta er í fimmta sinn sem hún er haldin hér á landi og er ráðstefnan þegar orðin einn helsti umræðuvettvangur jarðvarma […]

Fyrirtækjastefnumót á IceFish 2024

Fífan, Smárinn Smárinn, Dalsmári 5, Kópavogur, Iceland

Fjórtánda Íslenska sjávarútvegssýningin verður haldin í Smáranum 18.-20. september 2024 og er þetta sérstök afmælissýning enda eru nú fjörutíu ár síðan IceFish var haldin fyrst. Icefish 2024 er viðburður sem enginn sem tengist sjávarútvegi og aðliggjandi greinum getur láta fram hjá sér fara. Á sýningunni má sjá nýjustu tæki, búnað og þjónustu sem sjávarútveginum býðst, […]

Þetta byrjar allt á góðri hugmynd!

Grand Hotel Sigtún28, Reykjavík, Iceland

Málþing um ávinning íslenskra þátttakenda í evrópskum rannsókna- og nýsköpunaráætlunum. Rannís boðar til opins málþings um þær evrópsku rammaáætlanir sem hýstar eru hjá Rannís (Horizon Europe, Life og Digital Europe, auk þjónustu EEN). Málþingið er haldið á Grand hótel Reykjavík kl. 14:00 - 17:00. Málþingið er hugsað sem stöðutaka á árangri Íslands fyrstu þrjú ár […]

Frá viðskiptahugmynd til fjármögnunar

Gróska Bjarkargata 1, Reykjavík, Iceland

Master class námskeið í umsjá Uffe Bundgaard-Joergensen, framkvæmdastjóra Gate2Growth. Markmið námskeiðsins er að leiðbeina frumkvöðlum í gegnum lykilþætti í gerð árangursríkrar viðskiptaáætlunar og öflunar fjármagns. Fjallað verður um hvernig má sameina fjármögnun úr einkageiranum með opinberum styrkjum, með sérstakri áherslu á styrki frá ESB, eins og fjármögnunarleiðir EIC  og EU Innovation Fund. Þátttakendur munu læra hvernig hægt er að nýta […]