Harder, Better, Funded, Stronger – Funding, Founders and Future Tech

Rannís, Tækniþróunarsjóður og Enterprise Europe Network, í samstarfi við sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, bjóða til hliðarviðburðar í Nýsköpunarvikunni. Viðburður þar sem hugmyndir verða að tækifærum, tengsl myndast og nýjar leiðir opnast fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Með blöndu af innblásnum kynningum, reynslusögum úr nýsköpunarumhverfinu og lifandi tónlistartækni, skapast kraftmikið og skapandi andrúmsloft þar sem framtíðin fær að hljóma.
Á sviðinu mætast fjármögnun, frumkvöðlar og framtíðartækni, en jafnframt verður tónlistin leiðarstef sem bindur viðburðinn saman, þar sem ný tækni og gervigreind opna nýjar víddir í hljóðheimum og upplifun.
Viðburðurinn er kjörið tækifæri til að, kynna sér stuðning og tækifæri fyrir nýsköpun, heyra reynslusögur, mynda tengsl.
Boðið er upp á léttar veitingar í lok viðburðar.
Viðburðurinn fer fram á ensku og er opinn öllum en nauðsynlegt er að skrá sig.