Loading Events

« All Events

Alþjóðlegur tengslaviðburður á IceFish 2026

23 September, 11:00 - 14:00
Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin IceFish verður með fyrritækjastefnmót

Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin og ráðstefnan (IceFish) er einn helsti alþjóðlegi vettvangur fagfólks í sjávarútvegi, fiskvinnslu og fiskeldi. Sýningin nær yfir alla virðiskeðjuna, frá veiðum og leit, til vinnslu, pökkunar og dreifingar  og sameinar lykilaðila sem móta framtíð greinarinnar.

Sem hluti af sýningunni mun Enterprise Europe Network standa fyrir sérstöku fyrirtækjastefnumóti (matchmaking).

Viðburðurinn byggir á svokölluðu „hraðstefnumóti“ fyrirtækja, þar sem þátttakendur eiga fyrirfram skipulagða einstaklingsfundi (1:1) með mögulegum samstarfsaðilum. Þetta gefur tækifæri til að:

  • Finna nýja birgja og viðskiptavini
  • Kanna nýja alþjóðlega markaði
  • Tengjast lykilákvörðunaraðilum
  • Mynda samstarf

Viðburðurinn hentar meðal annars:

  • Framleiðendum og vinnsluaðilum í sjávarútvegi
  • Útgerðarfyrirtækjum
  • Fyrirtækjum í fiskeldi
  • Tæknifyrirtækjum og búnaðarframleiðendum
  • Fjárfestum og sérfræðingum í greininni

Þátttakendur koma alls staðar að úr heiminum og eru allir að leita að nýjum samstarfstækifærum.

Fyrirtækjastefnumótið skipulagt af Enterprise Europe Network í samstarfi við Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýninguna og er ókeypis.

Details

  • Date: 23 September
  • Time:
    11:00 - 14:00
  • Event Category:
  • Website: een.is

Organiser

Venue

  • Fífan, Smárinn
  • Smárinn, Dalsmári 5
    Kópavogur, 200 Iceland
    + Google Map