Íslenska nýsköpunarfyrirtækið GeoSilica hefur náð mikilvægum áfanga í þróun sjálfbærrar tækni með þátttöku í Eurostars-verkefninu REGEOSS (Recovery of Geothermal Silica for Sustainable Multi-Productions). Verkefnið sýnir mikilvægi alþjóðlegs samstarfs og hvernig hægt er að umbreyta hliðarafurðum jarðvarma í verðmætar og umhverfisvænar lausnir fyrir meðal annars matvæla-, landbúnaðar- og iðnaðargeirann.
GeoSilica var stofnað árið 2012 af frumkvöðlinum Fidu Abu Libdeh og samnemanda hennar við Háskóla Íslands. Upphafið var lítið rannsóknarverkefni sem byggði á áhuga á nýtingu náttúruauðlinda Íslands og möguleikum kísils sem finnst í jarðhitavatni. Með árunum þróaðist verkefnið í öflugt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun fæðubótarefna úr hreinum og náttúrulegum steinefnum sem unnin eru úr íslenskum jarðhita með sérhæfðri tækni.
Árið 2014 fékk fyrirtækið styrk úr Tækniþróunarsjóði Rannís sem lagði grunn að frekari vexti og alþjóðlegri sókn. Eftir því sem starfsemin stækkaði jókst þörfin fyrir ráðgjöf, tengslamyndun og aðgang að alþjóðlegum samstarfsaðilum. Þar hófst samstarf GeoSilica við Enterprise Europe Network (EEN) á Íslandi og ráðgjafa netsins hjá Rannís, Mjöll Waldorff, sem hefur fylgt fyrirtækinu í gegnum mikilvæga þróunaráfanga.
Árið 2022 leitaði GeoSilica til EEN til að finna samstarfsaðila fyrir rannsóknar- og þróunarverkefni til að sækja um Eurostars-styrk. Fyrirtækið vildi efla rannsóknir sínar á möguleikum kísils og þróa nýjar lausnir sem byggja á sjálfbærri nýtingu jarðhitavökva. EEN vann náið með fyrirtækinu að því að greina þarfir þess, móta samstarfsleit og kynna verkefnahugmyndina innan evrópska netsins.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Öflugt samstarf myndaðist við ítölsku rannsóknastofnunina CNR-ISSMC og fyrirtækin Tec Star og Demetra Italia. Samstarfið sameinaði sérfræðiþekkingu á sviði nanótækni, efnisfræði og landbúnað og skapaði sterkan grunn fyrir REGEOSS-verkefnið.
Árangurinn hefur verið umtalsverður. Verkefnið sýndi fram á hvernig umbreyta má kísli úr jarðhitavökva í verðmæt nanóefni með notkunarmöguleika á mörgum sviðum. Meðal afurða verkefnisins eru ný náttúruleg fæðubótarefni, líförvandi efni fyrir landbúnað sem auka þol og heilbrigði plantna og háþróaðir iðnaðarvökvar og húðunarefni með minni umhverfisáhrifum. Rannsóknir staðfestu jafnframt að nanókísill getur, í réttum skömmtum, örvað kollagenframleiðslu í frumum og opnað ný tækifæri á sviði heilsu- og snyrtivara.
Fyrir GeoSilica hefur þátttakan í REGEOSS styrkt rannsóknar- og þróunargetu fyrirtækisins, aukið alþjóðlegt tengslanet þess og opnað leiðir inn á nýja markaði.
Saga GeoSilica er dæmi um hvernig frumkvæði og öflugut samstarfsnet getur þróast úr lítilli rannsóknarhugmynd í alþjóðlegt nýsköpunarverkefni. Þetta er saga þar sem verkefnin geta haft raunveruleg áhrif á samfélag, atvinnulíf og sjálfbæra nýtingu auðlinda.