BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//EEN - Iceland - ECPv6.16.4//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://een.is/en
X-WR-CALDESC:Events for EEN - Iceland
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251202T093000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251202T153000
DTSTAMP:20260620T143609
CREATED:20260109T133856Z
LAST-MODIFIED:20260109T134001Z
UID:2334-1764667800-1764689400@een.is
SUMMARY:Frá viðskiptahugmynd til fjármögnunar
DESCRIPTION:Miðstöð stafrænnar nýsköpunar á Íslandi (EDIH) og Enterprise Europe Network á Íslandi standa fyrir „master class“ námskeiði í samstarfi við Gate2Growth dagana 2.-3. desember í Hannesarholti við Grundarstíg 1. Fyrri dagurinn stendur frá kl. 10-16\, en boðið er upp á einstaklingsráðgjöf seinni daginn. Athugið\, það er takmarkað pláss í einstaklingsráðgjöfina og verður fundartímum úthlutað í þeirri röð sem fyrirspurnir berast. \nMarkmið námskeiðsins er að leiðbeina þátttakendum við að þróa öflugt viðskiptamódel\, setja fram faglega viðskiptaáætlun og læra að velja réttar fjármögnunaraðferðir. Farið verður yfir hringrásar- og línuleg viðskiptamódel\, áskoranir opinberra innkaupa og hvernig fyrirtæki geti sameinað einkafjárfestingu og opinbera styrki. \nSérstök áhersla er lögð á: \n\nHvernig á að laða að fjárfesta\nFjárhagsáætlanir og lausafjárgreiningu\nHelstu ESB-styrki\nHvers vegna og hvenær á að taka þátt í alþjóðlegum samstarfsverkefnum\n\nDrög að dagskrá\n \nÞriðjudagur\, 2. desember  \n\n09.30 Húsið opnar\n10.00-12.30 Fjármögnunarlandslagið og hringrásar/línuleg viðskiptamódel\, viðskiptaáætlun\n12.30-13.00 Hádegismatur\n13.00-15.30 Að laða að fjárfesta með sterku viðskiptamódeli\, opinberir styrkir / ESB-styrkir\, böl eða blessun\n\nMiðvikudagur\, 3. desember \n\n09.30 Húsið opnar\nEinstaklingsráðgjöf\, sér skráning og hér gildir fyrstur kemur fyrstur fær.\n\nLeiðbeinandi\nUffe Bundgaard-Joergensen\, forstjóri Gate2Growth og sérfræðingur í fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja í Evrópu.\nUffe er með doktorsgráðu í hagfræði og rekstrarrannsóknum frá Kaupmannahafnarháskóla og Tækniháskóla Danmerkur. Hann hefur starfað sem ráðgjafi\, rannsóknarstjóri\, framkvæmdastjóri og stjórnandi í bæði einka- og opinbera geiranum. Hann er meðlimur Vísindaakademíu Danmerkur og var í 15 ár formaður danska orkumálaeftirlitsins. Hann hefur einnig starfað sem alþjóðlegur ráðgjafi í Afríku\, Asíu og Suður-Ameríku. \nNámskeiðið fer fram á ensku \nNámsskeiðsgjald: 4.990 kr.\nInnifalið: Hádegismatur\, hressing og öll gögn\, þar með talið:\nEU-verkefnaskýrslan Circular & Linear Business Cases and Public Procurement Challenges.\nAðgangur að G2G Business Plan Writer og fjárhagsáætlunarmódúl í 3 mánuði. \n\nNámskeiðinu lýkur með einstaklingsráðgjöf þar sem þátttakendur geta fengið markvissa endurgjöf á eigin verkefni. Sérstök skráning er í gegnum netfangið hjá Kolfinnu Tómasdóttur\, kolfinna.tomasdottir@rannis.is  \nVinsamlegast sendið stutta lýsingu á verkefninu ykkar á ensku við skráning.
URL:https://een.is/en/event/fra-vidskiptahugmynd-til-fjarmognunar-2/
CATEGORIES:Dagatal
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://een.is/wp-content/uploads/2025/11/masterclass-vidskiptah_fjarmognun-des25-1.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR