Beint á aðalflokka vefsins
Beint á undirflokka vefsins
Merki Enterprise Europe Network

Tækniyfirfærsla og Evrópusamvinna

  

Þekkingar- og tækniyfirfærsla

Með tæknifærslu er átt við yfirfærslu hvers konar þekkingar og tækni frá einum aðila til annars. Oftast er  hugtakið notað í sambandi við yfirfærslu á þekkingu frá einni atvinnugrein yfir í aðra, en þetta getur líka þýtt hagnýtingu fyrirtækja á þekkingu háskóla og rannsóknastofnana og yfirfærsla á tækni fyrirtækis í einu landi til fyrirtækis í öðru landi.  Það sem þó skiptir mestu máli er að tækniyfirfærsla er öflug leið til nýsköpunar og aukinnar samkeppnishæfni, hvort sem er á sviði rannsókna, vöruþróunar, breyttra framleiðsluaðferða, hagræðingar eða á öðrum sviðum framleiðslu og fyrirtækjareksturs.

Þjónusta Evrópumiðstöðvar Impru

Meginmarkmið Evrópumiðstöðvar er að stuðla að tækni- og þekkingaryfirfærslu, annars vegar frá íslenskum fyrirtækjum, háskólum og rannsóknaraðilum til Evrópu og hins vegar frá evrópskum aðilum til  Íslands.  Í því felst meðal annars að:

  • Finna tækninýjungar erlendis frá sem geta nýst íslenskum fyrirtækjum eða rannsóknaraðilum.
  • Koma nýjungum frá íslenskum fyrirtækjum á framfæri erlendis.
  • Leita að samstarfsaðilum í Evrópu, hvort sem um er að ræða framleiðendur, ráðgjafa, rannsóknarteymi eða vöruþróunaraðila.

Enterprise Europe Netwok er öflug leið fyrir íslensk fyrirtæki og rannsóknaraðila til að nálgast t.d nýjar aðferðir eða tækni, en í því felast líka tækifæri til að færa þekkingu og tækni frá Íslandi til annarra landa í Evrópu.

Frekari upplýsingar veita starfsmenn Evrópumiðstöðvar


Leitaðu tækifæra


Tækniyfirfærsla og tengslanet

evropusamvinna.is

Þú ert hérna:

  Tækni og Evrópusamvinna

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Samskipti


Vissir þú?

Að „Locatify á Íslandi þakkar þá góðu þjónustu sem EEN hefur veitt okkur. Við höfum náð góðum samstarfsaðilum í Evrópu sem stefna að sömu markmiðum og við."

Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir


Flýtileiðir


Fréttaveita EEN